Metkulda spáð í Stokkhólmi

Ísi þakið reiðhjól í Stokkhólmi.
Ísi þakið reiðhjól í Stokkhólmi.

Spáð er allt að 20 stiga frosti í Stokk­hólmi, höfuðborg Svíþjóðar, síðar í vik­unni. Svo mikið frost hef­ur ekki mælst í borg­inni í heila öld, að sögn veður­fræðinga. Einnig er spáð snjó­komu.

Að sögn frétta­vefjar Dagens Nyheter mæld­ist 18 gráðu frost í Stokk­hólmi í lok nóv­em­ber árið 1884 og 17 gráður í nóv­em­ber 1904. 

Enn kald­ara verður þó ann­arstaðar í Svíþjóð, ef spár ganga eft­ir. Spáð er 25-30 gráðu frosti í Döl­un­um, Jämt­land og Härj­eda­len.

Gert er ráð fyr­ir að þessu kuldakasti linni í næstu viku. 

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert