Þýskur karlmaður hefur verið handtekinn fyrir að að ráðast á kærasta dóttur sinnar og skera undan honum kynfærin með brauðhníf. Fram kemur í fjölmiðlum að faðirinn hafi verið verulega ósáttur við að 57 ára gamall karlmaður ætti í ástarsambandi við 17 ára gamla dóttur sína.
Helmut Seifert, sem er 47 ára gamall, reiddist þegar hann komst að því að Philipp Genscher ætti í sambandi við dóttur sína.
Seifert hafði í fyrstu samband við lögregluna í Bielefeld þar sem hann býr, en lögreglan sagði að hún gæti ekkert gert.
Að sögn lögreglu ákvað Seifert því að taka málin í sínar hendur og fékk hann tvo vinnufélaga sína til að aðstoða sig.
Þeir fóru heim til Genschers, skipuðu honum að klæða sig úr buxunum, geltu hann og skildu hann eftir í blóði sínu. Genscher, sem var mjög hætt kominn, náði hins vegar að hringja eftir aðstoð. Hann lifði árásina af en verður geldingur þar sem eftir lifir.
Seifert hefur játað brot sitt og á næsta ári verður réttað í máli hans, en hann hefur verið ákærður fyrir morðtilraun. Hann hefur þagað þunnu hljóði um aðstoðarmenn sína.
„Ég fékk nafnlausa símhringingu um að dóttir mín og maður sem er 40 árum eldri en hún ættu í ástarsambandi. Þið sögðust ekki geta stöðvað hann. Þess vegna gerði ég það,“ sagði Seifert við lögregluna og bætti við. „Þetta var skylda mín sem faðir.“