Stærsta moska Vestur-Evrópu var opnuð í dag í Hollensku borginni Rotterdam.
Byggingin var fimm árum á eftir áætlun og kenna aðstandendur hennar hægri sinnuðum stjórnmálamönnum um seinkunina.
Moskuna prýða tveir turnar, eða mínarettur, sem hvor um sig er 50 metra hár. Þar geta 3000 beðist fyrir í senn.
Moskunni er ætlað að verða miðstöð góðgerða, gegnkvæms skilnings og fyrirgefningar.
„Þessi ósköp eiga ekki heima hér, heldur í Saudi-Arabíu,“ sagði Geert Wilders, leiðtogi íhaldsmanna og formaður hollenska frelsisflokksins um bygginguna.
Bygginguna fjármagnaði Al Maktoum stofnunin, sem eru góðgerðarsamtök, stofnuð af konungsfjölskyldunni í Dubai.