Norski Hægriflokkurinn og Framfaraflokkurinn hafa aukið fylgi sitt og eru nú hvor um sig stærri en Verkamannaflokkurinn, samkvæmt skoðanakönnun sem Norstat gerði fyrir Vårt Land nú í mánuðinum. Þetta kemur fram á fréttavefnum DN.no.
Ef úrslit stórþingskosninga yrðu með sama hætti og niðurstaða skoðanakönnunarinnar myndu Hægriflokkurinn og Framfaraflokkurinn fá samanlagt 54,4% atkvæða og 97 fulltrúa á þinginu, en það samsvarar 57,4% af fjölda þingmanna.
Framfaraflokkurinn bætti mestu fylgi við sig, 4,2 prósentustigum samkvæmt könnuninni, og naut stuðnings 25,8% svarenda. Verkamannaflokkurinn naut fylgis 25,6% svarenda og hafði það minnkað um 1,9 prósentustig.
Hægriflokkurinn nýtur mests fylgis, 28,6% og hefur bætt við sig hálfu prósentustigi frá síðustu könnun. Þetta er mesta fylgi sem Hægriflokkurinn hefur fengið í skoðanakönnunum Vårt Land.
Hinir tveir stjórnarflokkarnir misstu einnig fylgi, líkt og Verkamannaflokkurinn. Miðflokkurinn naut stuðnings 5,3% og Sósíaliski vinstriflokkurinn 5%. Stjórnarflokkarnir nutu því stuðnings 35,9% svarenda. Í kosningum hefði slíkt fylgi skilað þeim 63 fulltrúum á norska Stórþinginu.