Jarðskjálfti upp á 7,2 stig reið yfir Chile á níunda tímanum í kvöld. Upptök skjálftans voru á 17 km dýpi í 95 km norðvestur af Temuco, samkvæmt fyrstu upplýsingum frá bandarísku jarðskjálftamiðstöðinni. Jarðskjálfti upp á 8,8 stig reið yfir Chile í febrúar.
Ekki hefur verið gefin út flóðaviðvörun en þrátt fyrir það hefur frést af fólki sem reynir að forða sér af svæðinu. Ekki er vitað um manntjón eða annað tjón af völdum skjálftans nú sem reið yfir klukkan 17:20 að staðartíma.