Aukinn ójöfnuður í einstökum ríkjum getur haft veruleg neikvæð áhrif á efnahagsbata í heiminum, að mati Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Í opinberum fyrirlestri sínum í Singapore í dag sagði Strauss-Kahn segir að slík innanríkisátök geti leitt til aukinnar tilhneigingar til verndartollastefnu, félagslegs- og pólitísks óstöðugleika og jafnvel leitt til stríðsátaka.
Hann sagði að vissulega væru batamerki í efnahag heimsins. En þau væru ekki öll jákvæð. Mikill munur væri á þróun mála í ríkjum, þar sem hagkerfi er þróað og þar sem það er styttra á veg komið.
„Á meðan vöxturinn er undir væntingum í þróuðum iðnríkjum, þá er hann miklu hraðari í þeim ríkjum þar sem hagkerfið er minna þróað. Sums staðar gerast hlutirnir of hratt,“ sagði Strauss-Kahn.
Hann sagði að sívaxandi atvinnuleysi og mikill tekjumunur væri ein aðalástaæða ólgunnar í Túnis og í öðrum löndum.