Allsherjarverkfall er fyrirhugað í dag í Egyptalandi, áttunda dag mótmælanna gegn Hosni Mubarak, forseta landsins. Yfir 5000 manns eru nú samankomin í miðborg Kaíró, en síðar í dag er „milljón manna kröfugangan“ áformuð.
Margir skeyttu engu um útgöngubann og vörðu nóttinni á Tahrir torgi í miðborginni.
Svipuð kröfuganga hefur einnig verið skipulögð í hafnarborginni Alexandríu, lestarferðir hafa verið felldar niður til og frá borginni, til að stemma stigu við að fólk flykkist til borgarinnar til að taka þátt í mótmælunum.
Að minnsta kosti 125 hafa látið lífið í mótmælunum.