Forsetafrúin Michelle Obama segir að eiginmaður sinn sé hættur að
reykja. Hún segir að Obama hafi ekki reykt í næstum ár og að hún sé
afar stolt af honum fyrir að hafa loks sigrast á fíkninni.
Michelle Obama lét þessi orð falla í viðtali við blaðamenn í Hvíta húsinu í gær. Hún sagði að forsetinn hafi alltaf viljað hætta.
Barack Obama hefur rætt opinskátt um sína baráttu við nikótín-fíkn. Í júní 2009 játaði hann að laumast af og til í sígaretturnar sínar.
Robert Gibbs, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, segir að hann telji að Obama hafi skuldbundið sig til að hætta eftir að hafa náð fram breytingum á heilbrigðiskerfinu og af tillitssemi við dætur sínar tvær.
Árið 2007 krafðist forsetafrúin að Obama myndi hætta áður en hann byði sig fram til forseta. Hann féllst á það, en átti í kjölfarið erfitt með að hætta endanlega. Svo virðist sem hann hafi loksins náð því markmiði.