Svissnesku feðgarnir heilir á húfi

Svissnesk lögregluyfirvöld segja feðgana heila á húfi.
Svissnesk lögregluyfirvöld segja feðgana heila á húfi. Reuters

Svissnesku feðgarnir, sem leitað hefur verið að síðan á mánudag, eru komnir í leitirnar heilir á húfi samkvæmt svissneska fréttamiðlinum 20min.ch. Ítalska lögreglan bar kennsl á bifreið þeirra fyrr í dag og gerði svissneskum lögregluyfirvöldum viðvart.

Bræðurnir Tim og Loren voru á leiðinni í innkaupaleiðangur með föður sínum, Erich Z, þegar þeir hurfu. Að sögn lögregluyfirvalda varð bíllinn bensínlaus á leiðinni til Ítalíu og ákváðu feðgarnir því að leita skjóls í sæluhúsi. Þeir voru allan tímann án matar og drykkja. Lögregla segir þá enn vera á Ítalíu en þeim verður komið til síns heima í Sviss eins hratt og mögulegt er. Ekki er vitað af hverju feðgarnir lögðu leið sína til Ítalíu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert