Jarðskjálfti í Arkansas

Mynd úr myndasafni.
Mynd úr myndasafni. Reuters

Jarðskjálfti, sem mældist 4,7 stig á Richter, reið yfir Arkansas fylki í suðurhluta Bandaríkjanna seint í gærkvöldi að staðartíma.

Jarðskjálftar eru sjaldgæfir á þessum slóðum. Upptök skjálftans voru sex kílómetra norðaustur af borginni Greenbrier.

Engar fregnir hafa borist af manntjóni eða skemmdum.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert