Talið er að um tuttugu manns á aldrinum 14 - 27 ára hafi átt þátt í kynferðislegri misnotkun á ellefu ára gamalli stúlku í Cleveland í Texas.
Misnotkunin var tekin upp á síma og hafði upptakan verið sýnd mörgum í heimabæ stúlkunnar. Þrettán fullorðnir og fimm unglingar hafa nú verið handteknir.
Á fréttavef CNN segir að stúlkan hafi sagt lögregluþjóni, sem starfaði í skólanum hennar, frá misnotkuninni. Hún segir að einn þeirra sem handteknir hafa verið hafi boðið henni far og farið með hana í hús nokkurt. Þar var henni sagt að afklæðast, annars yrði hún barin.
Síðan var henni misþyrmt á kynferðislegan hátt og húsráðandi hringdi í fleiri til að taka þátt.
Málið hefur vakið mikla athygli vestra, ekki síst vegna þess að ýmislegt bendir til þess að lögregla hafi vitað af því um nokkurt skeið, án þess að aðhafast nokkuð.