Jarðskjálftinn í Japan í morgun er einn sá öflugasti, sem orðið hefur í heiminum á síðustu öld. Hann var 8,9 stig. Að sögn japönsku Kyodo fréttastofunnar er ljóst, að yfir þúsund manns hafa látið lífið af völdum skjálftans og flóðbylgjunnar í kjölfarið.
Öflugasti jarðskjálfti, sem mælst hefur frá árinu 1900 varð við suðurströnd Síle 22. maí 1960 og mældist 9,5 stig. Manntjón varð ekki mikið en um 2 milljónir manna misstu heimili sín.
Banvænasti skjálftinn varð í Tangshan í Kína 27. júlí 1976. Hann mældist 7,5 stig og samkvæmt opinberum tölum létu 255 þúsund manns lífið en talið er að allt að 655 þúsund manns hafi farist.