68 ára gamall karlmaður frá Västervikstrakten í Svíþjóð var í dag dæmdur í héraðsdóminum í Kalmar til þriggja ára fangelsisvistar fyrir að hafa misnotað fimm ára stúlku kynferðislega.
Stúlkan var í pössun á heimili mannsins, en eiginkona hans er dagmamma. Við réttarhöldin kom fram að maðurinn misnotaði stúlkuna margoft.
Þetta kemur fram á vefsíðu sænska dagblaðsins Dagens Nyheter
Auk fangelsisvistarinnar var maðurinn dæmdur til að greiða barninu 130.000 sænskar krónur í skaðabætur.