Japanskeisari ávarpar þjóð sína

Akihito keisari flytur sjónvarpsávarp sitt í dag.
Akihito keisari flytur sjónvarpsávarp sitt í dag. Reuters

Akihito, keisari Japans, sagðist í morgun biðja fyrir öryggi þjóðar sinnar. Hann sagðist áhyggjufullur vegna ástands kjarnorkuversins í Fukushima, sem nokkuð óstöðugt, en í morgun voru fjórar japanskar herþyrlur sendar til að varpa vatni á kjarnakljúfa versins í von um að það yrði til þess að kæla þá.

Akihito kemur sjaldan fram í fjölmiðlum, en í sjónvarpsávarpi sínu sagði hinn 77 ára gamli keisari að ekki væri vitað hversu margir hefðu látist. „Fólk hefur neyðst til að yfirgefa heimili sín við skelfilegar aðstæður, í frosti og án vatns og eldsneytis,“ sagði keisarinn.  „Ég bið fyrir því, að eins margir og hugsast getur séu öruggir. Ég vona það eitt, að björgunarstörf gangi vel og að hægt sé að létta fólki lífið þótt í litlu sé."

Áætluð tala látinna eftir jarðskjálftann og flóðbylgjuna er nú komin yfir 11 þúsund. 3676 lík hafa fundist og 7558 er saknað. 

Akihito sagðist einnig hafa miklar áhyggjur af ástandinu í Fukushima kjarnorkuverinu og sagðist vona að það versnaði ekki. 

Akihito var krýndur keisari árið 1989 eftir að faðir hans, Hirohito, lést. Talsmaður keisarahallarinnar sagði, að þetta væri í fyrsta skipti sem keisarinn hefði ávarpað japönsku þjóðina í sjónvarpi eftir náttúruhamfarir. Eftir jarðskjálfta, sem reið yfir borgina Kóbe árið 1995, þar sem yfir 6400 létu lífið, sendi keisarinn frá sér skriflega yfirlýsingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert