Starfsmenn voru fluttir frá Fukushima kjarnorkuverinu í morgun eftir að reyk lagði frá kjarnaofni þrjú.
Fyrirtækið Tokyo Electric Power Co., sem rekur kjarnorkuverið, sagði að þunn grá reykjarsúla hefði stigið upp frá kjarnaofni 3 klukkan 3:55 í dag, klukkan 6:55 að íslenskum tíma.
Vegna þessa hafi verið ákveðið að rýma svæðið á meðan málið var kannað nánar.
Embættismaður sagði við AFP, að starfsmenn hefðu verið fluttir frá ofni númer 3 en ekki frá verinu öllu.