Tvær konur grýttar til bana

Hópur unglinga grýtti unga konu og ömmu hennar til bana í þorpinu Tzaneen í Suður-Afríku í gær. Unglingarnir, auk annarra þorpsbúar, voru vissir um að unga konan hefði stundað galdra.

Lögregluyfirvöld segja ungu konuna hafa verið vel stæða þar sem hún vann einkar hart að sér fyrir fjölskyldu sína. Afbrýðisemi heltók nokkra íbúa í þorpinu og komu þeir af stað sögusögnum með fyrrgreindum afleiðingum. „Það er erfitt fyrir suma í þorpinu að skilja þegar öðrum vegnar vel í lífinu,“ sagði lögreglumaður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert