Nýjar myndir frá Fukushima

Nýtt myndband sýnir reyk liðast upp frá Fukushima kjarnorkuverinu í Japan. Myndbandið sýnir vel hversu eyðileggingin í Fukushima er mikil.

Varnarmálaráðuneytið í Japan birti myndbandið sem tekið er úr þyrlu. Myndbandið sýnir reyk liðast upp úr einnig byggingunni. Starfsmenn kjarnorkuversins hafa unnið allan sólarhringinn að því að ná tökum á ástandinu, en slysið er versta kjarnorkuslys í 25 ár. Þrír starfsmenn urðu fyrir geislun þegar þeir unnu i verinu í vikunni, en geislunin er um 10 þúsund meiri en en við venjulega aðstæður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert