Yfir fimmtíu létust og tugir bygginga hrundu í öflugum jarðskjálfta sem reið yfir í Búrma í morgun. Skjálftinn var 6,8 stig.
Upptök skjálftans voru skammt frá landamærum Búrma að Taílandi og hann fannst í Bangkok, sem er 800 kílómetra frá upptökunum, í Hanoi í Víetnam og á nokkrum stöðum í Kína.
Þeir sem létust voru búsettir í smáþorpum skammt frá upptökunum.