Meðlimir glæpaflokks í suðurhluta Kalíforníu nauðguðu 11 ára gamalli stúlku inni í salerni í almenningsgarði. Sjö unglingspiltar hafa verið handteknir vegna málsins.
„Þetta nístir mann inn að beini. Ég hætti aldrei að undrast hve hægt er að sýna af sér mikla grimmd," sagði Stan Sniff, lögreglustjóri í Riverside við blaðið Riverside Press-Enterprise.
Stúlkunni var nauðgað hvað eftir annað fyrir tæpum þremur vikum en lögreglan sagði ekki frá málinu fyrr en í gær.
Sex piltar voru handteknir skömmu eftir að glæpurinn var framinn og sá sjöundi, 19 ára piltur, var handtekinn í gær.
Þetta var í annað skipti á einum mánuði sem ung stúlka varð fyrir kynferðislegri árás í Riversidesýslu. Í febrúar voru þrír þrettán ára gamlir drengir handteknir eftir að stúlka sagði að piltur hefði nauðgað sér á meðan tveir aðrir héldu henni.