Franskar hersveitir taka nú fullan þátt í bardögum í miðborg Abidjan, höfuðborgar Fílabeinsstrandarinnar. Þær gerðu m.a. loftárás á forsetahöllina þar sem Laurent Gbagbo hefur aðsetur.
Gbagbo hefur neitað að fara frá völdum þó fullyrt sé að hann hafi tapað í forsetakosningunum í nóvember. Einn af ráðherrum hans sagði í dag að Gbagbo væri á lífi en að Frakkar hefðu gert loftárás á forsetahöllina.