Franskir hermenn hafa fundið nokkrar stórar vopnageymslur á Fílabeinsströndinni sem talið er að hermenn hliðhollir Laurent Gbagbo, fyrrverandi forseta landsins, hafi notað. Gbagbo er nú í stofufangelsi á heimili sínu í Abidjan.
Vopnin voru geymd í nokkrum glæsihýsum í borginni. Fréttaskýrendur segja að gríðarlegt magn vopna hafi verið í geymslunum. Nægilega mikið til að hefja ný stríðsátök. Í geymslunum voru m.a. sprengjuvörpur, fallbyssur og eldflaugar, að því er fram kemur á vef BBC.
Franskir hermenn munu skrá vopnin og í framhaldinu afhenda þeim afrískum friðargæsluliðum Sameinuðu þjóðanna.
Franskar hersveitir leiddu áhlaup gegn Gbagbo sl. mánudag og þvinguðu hann til að láta af völdum. Gbagbo neitaði að viðurkenna ósigur í forsetakosningunum sem fram fóru í nóvember sl.
Alassane Ouattara, sem alþjóðasamfélagið viðurkenndi sem sigurvegara, hefur nú tekið við sem forseti Fílabeinsstrandarinnar.
Talið er að um 1.500 hafi fallið í átökunum sem brutust út á milli liðsmanna Gbagbos og Ouattaras og yfir ein milljón varð að flýja heimili sín.