Herþotur NATO gerðu í dag loftárás á Sirte, fæðingarbæ Múammars Gaddafis leiðtoga Líbíu. Þetta segir JANA, ríkisfréttastofa landsins, og talar um árásir „nýlendukrossfaranna“, þ.e. Vesturveldanna.
Um 120.000 íbúar búa í hafnarborginni Sirte, sem er um 360 km austur af höfðuborginni Trípólí.
JANA segier að einnig hafi verið gerðar árásir á bæinn Al-Aziziya sem er suður af höfuðborginni.