Hópur fyrrverandi þjóðhöfðingja er á leið til Norður-Kóreu til að reyna að fá þarlend stjórnvöld til að taka upp viðræður um kjarnorkumál að nýju.
Í hópnum, sem nefndur er Öldungarnir, eru Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkjaforseti, Martti Ahtisaari, fyrrum forseti Finnlands, Mary Robinson, fyrrum forseti Írlands og Gro Harlem Brundtland, fyrrum forsætisráðherra Noregs.
Hópurinn kom til Peking í Kína í dag á leiðinni til Norður-Kóreu. Ætla þjóðarleiðtogarnir fyrrverandi einnig að ræða við norður-kórensk stjórnvöld um viðvarandi matarskort í landinu.