Eric Holder, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að árás sérsveitarmanna bandaríska sjóhersins á hryðjuverkaleiðtogann Osama bin Laden, hafi verið lögleg og „liður í sjálfsvörn þjóðarinnar."
Holder sat fyrir svörum hjá nefnd öldungadeildar bandaríska þingsins. Þar sagði hann, að aðgerðirnar gegn bin Laden hefðu verið löglegar og í samræmi við bandarísk gildi.
Ráðherrann var yfirheyrður eftir að í ljós kom, að bin Laden var óvopnaður þegar bandarísku sérsveitarmennirnir skutu hann til bana.Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður, spurðu hvort sérsveitarmaður „yrði ekki að trúa því," að sá maður, sem var efstur á lista yfir eftirlýsta glæpamenn, væri „gangandi sprengja".
„Einmitt," sagði Holder.