Fidel Castro, fyrrum leiðtogi Kúbú, gagnrýnir aðferðir Bandaríkjamanna við að ráða Osama bin Laden af dögum. Sagði Castro í kúbverskum fjölmiðlum í gær, að um væri að ræða viðurstyggilegt morð, sem gæti haft þær afleiðingar að hatur og hefndarhugur í garð Bandaríkjanna aukist.
„Hvað svo sem bin Laden kann að hafa verið kennt um, er morð á óvopnaðri manneskju sem er umkringd fjölskyldu sinni viðurstyggilegur gjörningur,“ sagði fyrrum leiðtogi Kúbu.
Castro segir að Bandaríkjamenn muni á endanum gagnrýna gjörninginn eftir að sæluvíman verður liðin. Hann sé „fjarri því að vera til þess fallinn að vernda borgarana, afleiðingin sé margföldun á hatri og hefndarhug í þeirra garð.“
„Að myrða hann og sökkva honum til botns í hafinu sýnir ótta og óöryggi, (og) gerir hann að mun hættulegri persónu,“ sagði Castro um bin Laden.