Herbergisþernan, sem sakar Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, um kynferðisbrot, bar kennsl á hann í sakbendingu í lögreglustöð í New York í dag.
Talsmaður lögreglunnar staðfesti þetta í kvöld.
Lögmenn Strauss-Kahn segja, að hann neiti öllum ásökunum og ætli að lýsa sig saklausan fyrir dómara.