Þúsundir mótmælenda í Madrid fögnuðu ákaft þegar 48 klukkustunda bann við mótmælum tók gildi á miðnætti.
Mótmælendur mótmæla ráðaleysi stjórnvalda gagnvart atvinnuleysi í landinu sem nú er yfir 20%.
Slagorð eins og „Nú erum við ólögleg“ og „Sameinuð verðum við aldrei yfirbuguð“ voru áberandi í göngunni í kvöld.
Sveitarstjórnarkosningar fara fram á Spáni um helgina, en mótmælin hófust í tengslum við kosningarnar.
Mótmælendur hafa vísað til búsáhaldabyltingarinnar á Íslandi en einnig mótmælanna í Arabalöndum.