Flugfélög í Evrópu hafa í dag fellt niður um 500 flugferðir vegna öskuskýja frá eldgosinu í Grímsvötnum. Hefur gosið haft áhrif á ferðir þúsunda flugfarþega. Mest truflun hefur orðið vegna flugs frá völlum á Bretlandseyjum og á Norðurlöndum, einkum í Noregi og Danmörku.
Fjölmörg flugfélög hafa orðið að fella niður ferðir eða fresta þeim, eins og Ryanair, British Airways, KLM og Easyjet. Samkvæmt nýjustu öskudreifingarspám gæti flug raskast í auknum mæli á meginlandi Evrópu, allt til Spánar.
Búist er við áframhaldandi truflun á flugumferð í Evrópu á morgun, eins og í Skotlandi og norðurhluta Englands.
Þá tilkynntu flugmálayfirvöld í Þýskalandi í kvöld að loka þurfi flugvöllum í norðurhluta landsins á morgun vegna öskumisturs frá Íslandi.