Félagar í umhverfisverndarsamtökunum Greenpeace fóru í morgun um borð í olíuborpallinn Leiv Eriksson, sem er við tilraunaboranir við vesturströnd Grænlands utan við Nuuk.
Esperansa, skip Grænfriðunga, hefur fylgst með pallinum frá því hann kom til Grænlands fyrir viku. Félagar í samtökunum sigldu í gúmbátum frá skipinu, framhjá danska varðskipinu Vædderen að pallinum og klifruðu um borð.
Eru tveir Grænfriðungar nú í björgunarhylki, sem fest hefur verið við borpallinn.
Markmiðið með aðgerðunum er að koma í veg fyrir áform skoska olíufélagsins Cairn Energy um að bora eftir olíu við Grænland.
Leiv Eiriksson á að bora eftir olíu á svæði sem nefnist Atammik.