Mohamed Bin Hammam, sem er frá Katar, segir að hann sækist ekki lengur eftir því að verða næsti forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA).
Hammam, sem er sitjandi forseti knattspyrnusambands Asíu, greindi frá þessu skömmu áður en hann átti að svara spurningum siðanefndar sem rannsakar ásaknir um mútur.
Hammam segist ekki vilja sjá nafn FIFA atað aur.
Hann átti að veit Sepp Blatter, forseta FIFA, mótframboð, en Blatter hefur sóst eftir endurkjöri. Málefni Blatters eru einnig til rannsóknar.
Bæði Hammam og Blatter neita öllum ásökunum um spillingu.
Hammam segir að menn megi ekki tengja ákvörðun sína um að draga sig í hlé við rannsókn nefndarinnar. Hann segir ennfremur að hann muni svara spurningum siðanefndarinnar og hyggst hann hreinsa nafn sitt.
Ákvörðunin þýðir að Blatter er eini frambjóðandinn. Kosning fer fram á miðvikudag.