Skar undan nauðgara

Fertug kona í Bangladess skar getnaðarlim undan manni sem reyndi að nauðga henni og fór að því búnu með liminn á næstu lögreglustöð sem sönnunargagn.

Maðurinn mun hafa ráðist á konuna síðastliðið laugardagskvöld, þar sem hún lá í fastasvefni í húsi sínu í  Jhalakathi héraði, sem er sunnan við borgina Dhaka.

„Þegar hann reyndi að nauðga henni, skar hún getnaðarlim hans af með hníf, pakkaði honum síðan inn í plast og fór með hann á lögreglustöðina,“ sagði Abul Khaer , lögreglustjóri héraðsins í samtali við AFP fréttastofuna.

Konan hefur lagt fram kæru á hendur manninum fyrir tilraun til nauðgunar og segir hann hafa áreitt sig undanfarna sex mánuði.

Maðurinn er nú á sjúkrahúsi, þar sem gert er að sárum hans og verður hann  handtekinn er hann kemst til heilsu á ný.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert