Mjög heitt er nú í norðausturhluta Bandaríkjanna, einkum í höfuðborginni Washington þar sem íbúar og ferðamenn eru að stikna.
Hitinn í Washington komst í 38°C í vikunni og mikill loftraki bætir ekki úr skák. Ekkert lát er á hitanum á næstunni samkvæmt veðurspám.