Vill að Obama verði endurkjörinn

Barack Obama og Dmitrí Medvedev
Barack Obama og Dmitrí Medvedev Reuters

Forseti Rússlands, Dmitrí Medvedev, segir að hann óski þess að Barack Obama verði endurkjörinn forseti Bandaríkjanna á næsta ári. Óttast hann að annars muni þau góðu tengsl sem þeir tveir hafi reynt að mynda milli ríkjanna tveggja muni dala.

„Ég get sagt ykkur það hreint út - ég vil það miklu frekar en margur annar að  Barack Obama yrði endurkjörinn forseti Bandaríkjanna,"segir Medvedev í viðtali við viðskiptablaðið Financial Times.

Eftir að Medvedev tók við af Pútín sem forseti Rússlands hefur það verið eitt helsta markmið utanríkisstefnu hans að auka og bæta tengslin við Bandaríkin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert