Reyndi að nauðga sofandi kærustu

mbl.is/Júlíus

19 ára sænskur karlmaður hefur verið dæmdur í 14 mánaða fangelsi fyrir að reyna að nauðga kærustunni sinni á meðan hún var sofandi eftir að hafa tekið inn svefnlyf. Um þetta er fjallað á fréttavefnum Thelocal.se í dag.

Parið hafði lent í rifrildi og að því loknu fór konan að sofa og tók inn svefnlyfið. Hún sagði fyrir dómi að hún hefði í gegnum svefninn orðið vör við að einhver héldi utan um hana en vaknaði síðan við mikinn sársauka þegar maðurinn gerði tilraun til endaþarmsmaka við hana.

Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að manninum hefði verið fullljóst að konan hefði tekið inn svefnlyf og reynt að notfæra sér ástand hennar. Þar sem konan var ekki í aðstöðu til þess að gefa samþykki sitt fyrir kynmökunum var niðurstaða dómsins sú að aðfarir hans fælu í sér nauðgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert