Bandaríska flugmóðurskipið USS Enterprise sigldi í gegnum Súes-skurðinn í dag á leið inn á Miðjarðarhafið. Fram kemur í frétt Reuters-fréttaveitunnar að hugsanlega muni skipið taka þátt í aðgerðum þeirra bandarísku herskipa sem stödd eru undan strönd Líbíu.
Þess má geta að USS Enterprise er stærsta herskip sem fyrirfinnst í heiminum í dag.