Mótmælin að breiðast út

Óeirðir voru fyrir utan hótel sem Guðmundur Sigurðsson gistir á …
Óeirðir voru fyrir utan hótel sem Guðmundur Sigurðsson gistir á í Aþenu fyrr í kvöld. Guðmundur Sigurðsson

Guðmundur Sigurðsson er staddur í Aþenu ásamt 22 öðrum aðstandendum Special Olympics. Óeirðir voru í kvöld fyrir utan hótelið þeirra. Mótmælendur kveiktu í bílum og gangstéttum og lögregla tók á móti þeim með táragassprengjum.

„Mótmælin hafa verið einskorðuð við miðbæinn en við veittum því athygli í dag að mótmælendur voru komnir í Omonia lestarstöðina um miðjan dag. Í kvöld birtust 40-50 mótmælendur í hliðargötu við hótelið okkar með stefnuna á stærsta safn Aþenu, National Archaeological Museum og kveiktu í ruslatunnum. Lögreglan tók á móti þeim með táragasbombum“ segir Guðmundur Sigurðsson við mbl.is.

Hópurinn gistir á hóteli nokkuð norðan við miðbæinn sem heitir Best Western Union. Ástandið var orðið rólegt fyrir utan hótelið nú í kvöld. 

Meðfylgjandi myndir tók Guðmundur af svölunum í herberginu sínu. 

Guðmundur Sigurðsson
Guðmundur Sigurðsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert