Laug í framburði sínum

Herbergisþernan sem hefur ásakað Dominique Strauss-Kahn um nauðgun laug í vitnisburði sínum þegar hún sagðist hafa tilkynnt atvikið til yfirmanns síns um leið og það hafði átt sér stað. Saksóknarinn í málinu upplýsti þetta í dag.

Nú hefur hún viðurkennt að eftir að atvikið á að hafa átt sér stað í svítu númer 2806, hafi hún farið og þrifið annað herbergi og síðan farið aftur í svítu 2806 og þrifið þar. Þar á eftir hafi hún farið til yfirmanns síns og tilkynnt nauðgunina.

Dominique Strauss-Kahn ásamt konu sinni Anne Sinclair eftir að hann …
Dominique Strauss-Kahn ásamt konu sinni Anne Sinclair eftir að hann var látinn laus í dag. Reuter
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert