Lést við að grípa bolta

Fyrrverandi forsetinn George W. Bush, á leik á Rangers Ballpark …
Fyrrverandi forsetinn George W. Bush, á leik á Rangers Ballpark í fyrra. Hann var á meðal gesta á vellinum í gær. POOL

Áhorfandi á hafnaboltaleik í Bandaríkjunum féll ofan úr stúku og lést þegar hann reyndi að grípa bolta sem leikmaður henti til hans í gær. Var fallið um sex metrar niður á steinsteypta gangstétt.

Var maðurinn að reyna að grípa bolta sem leikmaður Texas Rangers, Josh Hamilton, kastaði til hans í leik gegn Oakland. Féll hann yfir grindverk eftir að hafa gripið boltann. Sást í sjónvarpi hvernig maðurinn féll niður fyrir aftan stigatöflu.

Fékk maðurinn mikla áverka á höfði og höndum en virtist með meðvitund þegar sjúkraliðar fluttu hann burt. Var hann úrskurðaður látinn síðar um daginn. Breska blaðið The Guardian segir frá þessu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka