Strauss-Kahn í fylgd með ókunnri konu

Dominique Strauss-Kahn
Dominique Strauss-Kahn Reuters

Dominique Strauss-Kahn var í fylgd með ókunnugri konu nóttina áður en hótelþerna sakaði hann um nauðgun.

Breska blaðið Telegraph segir frá þessu. Í frétt blaðsins segir að á eftirlitsmyndavél sjáist Strauss-Kahn fara inn í lyftu í fylgd með  ókunnugri  konu nokkrum klukkutímum áður en meint nauðgun á að hafa átt sér stað.

Lögregla hefur haft samband við konuna en hún er sögð hafa neitað að ræða við hana um samskipti sín við Strauss-Kahn að því er fram kemur í New York Times.

Í frétt blaðsins kemur einnig fram að Strauss-Kahn hafi boðið tveimur þernum sem störfuðu á hótelinu til að koma inn á herbergið til sín þessa nótt, en þær hafi hvort í sínu lagi hafnað boðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert