Breska lögreglan leitar nú morðingja sem talinn er bera ábyrgð á dauða þriggja sjúklinga á sjúkrahúsi. Þykir málið minna mjög á morð á sjúkrahúsi á tíunda áratug síðustu aldar. Hjúkrunarfræðingurinn Beverley Allitt var á sínum tíma dæmd fyrir þau morð.
Þrír sjúklingar, 1 kona og tveir karlar hafa látist á Stepping Hill sjúkrahúsinu í þessum mánuði án þess að vera alvarlega veik. Er talið að þeim hafi verið gefið insúlín í stað saltvatns.