Rebekah Brooks, fyrrum ritstjóri breska götublaðsins News of the World, neitaði við yfirheyrslur hjá breskri þingnefnd í dag að hafa greitt lögreglumönnum fyrir upplýsingar. Hún, líkt og Rupert og James Murdoch, baðst afsökunar á símahlerunum á vegum blaðsins.
Fyrr í dag sagði Rupert Murdoch það ekki vera „neina afsökun“ en hann gæti ekki borið einn ábyrgðina á því að fletta ofan af hneykslinu í fyrirtækjaveldi sem hefði um 53.000 starfsmenn.