Stjórnvöld í Ástralíu velta því nú fyrir sér að hækka aldurstakmarkið á Facebook, að gefa foreldrum aðgang að síðum barna sinna og að krefjast þess að notendur sanni aldur sinn þegar þeir skrá sig.
Um það bil 10 milljón Ástralir nota samskiptavefinn og samkvæmt núverandi reglum þurfa notendur að staðfesta við skráningu að þeir séu orðnir þrettán ára gamlir en engin leið er til að staðfesta hvort þeir segji satt og rétt frá.
Ríkissaksóknari Ástralíu, Robert McClelland, segir foreldra hafa kvartað yfir því að aldurstakmarkið sé of lágt og að börnin séu að birta efni á síðum sínum sem gætu skaðað atvinnumöguleika þeirra í framtíðinni.
Ýmsar tillögur eru til umræðu hjá löggjafanum varðandi málið, til dæmis að hækka aldurstakmarkið í 18 ár og að tryggja foreldrum stjórnenda-aðgang að síðum barna sinna.