Að minnsta kosti 17 féllu í sprengingunni í miðborg Osló og skotárásinni á Utøya í dag. Fjöldi hinna látnu gæti aukist, að sögn Sveinung Sponheim, starfandi lögreglustjóra í Osló.
Sjö fórust í sprengingunni í Osló og staðfest er að a.m.k. 10 hafi fallið í skotárásinni á Utøya. Fréttavefur VG segir lögregluna óttast að fleiri kunni að finnast látnir í nótt.
Fram hefur komið að óttaslegin ungmenni hafi reynt að forða sér á sundi úr eyjunni.