Sætir ámæli fyrir þögn

Fólk hefur haldið áfram að leggja blóm og kerti á …
Fólk hefur haldið áfram að leggja blóm og kerti á torgið framan við dómkirkjuna í Ósló til minningar um fórnarlömb árásanna. Reuters

Frederik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, sætir nú ámæli í heimalandi sínu fyrir að hafa lítið fjallað um hryðjuverkaárásirnar í nágrannalandinu Noregi. Í dag kom fram, að Reinfeldt fór í frí til Tyrklands sl. sunnudag ásamt konu sinni, tveimur dögum eftir árásirnar í Noregi.

Reinfeldt flutti ræðu daginn eftir árásirnar þar sem hann fordæmdi þær og sama dag ræddi hann við Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, í síma. Að öðru leyti hefur hann ekkert látið málið til sín taka.

Sænska blaðið Aftonbladen spurði í leiðara í síðustu viku: Hvar ert þú, Reinfeldt?  Vísaði blaðið m.a. til þess, að Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, heimsótti norska sendiráðið í Washington í vikunni og skrifaði í minningarbók.  

Í dag segir Aftonbladet, að Reinfeldt hafi farið til sumarleyfisbæjarins Antalya  í Tyrklandi sl. sunnudag ásamt konu sinni og öryggisvörðum. Ekki hafa fengist upplýsingar um hve lengi hann verður í fríi. Reinfeldt hefur þó boðað, að hann muni um næstu helgi heimsækja heimsmót skáta, sem haldið er í Kristianstad.

Markus Friberg, upplýsingafulltrúi Reinfeldts, vildi ekki tjá sig um málið, og segir einnig, að forsætisráðherrann ætli ekki að tjá sig um gagnrýnina sem hann sætti.

Ungliðahreyfing sænska Jafnaðarmannaflokksins hefur einnig gagnrýnt Reinfeldt fyrir fjarveruna og benti m.a. á, að forsætisráðherrann hefði ekki tekið þátt í neinum minningarathöfnum, sem skipulagðar voru í Svíþjóð vegna hryðjuverkanna í Noregi.  

Svenska Dagbladet hefur eftir stjórnmálafræðingnum Ulf Bjereld, að Reinfeldt hefði átt að leiða sorgarferlið í Svíþjóð. Nú þyki mörgum, sem hann hafi ekki gert sér fulla grein fyrir alvöru málsins. Í sama streng tekur Peter Wolodarski, stjórnmálaritstjóri Dagens Nyheter, í dálki.  

Fredrik Reinfeldt.
Fredrik Reinfeldt. Reuters
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert