Leiðtogi hægri demókrataflokksins í Svíþjóð, Jimmi Aakesson segir fjöldamorðin í Noregi enga ástæðu til að hætta að gagnrýna innflytjendastefnu Svíþjóðar.
„Það verður auðvitað að vera hægt að gagnrýna innflytjendastefnu Svíþjóðar án þess að bera ábyrgð á því sem þessi fjöldamorðingi hefur gert, “sagði Aakesson við 300 stuðningsmenn í Sowlvesborg í Suður-Svíþjóð.