Hugo Chavez forseti Venesúela er núna staddur á Kúbu þar sem hann gengst undir aðra lyfjameðferð, en hann er með krabbamein. Chavez, sem er 57 ára gamall hefur misst hárið vegna meðferðarinnar.
Chavez sagði í viðtali við fjölmiðla að hann hefði trú á að hann myndi snúa aftur til Venesúela eftir nokkra daga „í betra ástandi en ég er í núna“.
Forsetakosningar eiga að fara fram í Venesúela á næsta ári en Chavez hefur ekki gefið annað til kynna en að hann ætli að bjóða sig fram að nýju.
Chavez gekkst undir aðgerð á Kúbu í júní vegna krabbameinsins.