Að minnsta kosti 54 eru taldir hafa farist þegar bát hvolfdi við Comoros-eyjar í Indlandshafi í gær. Talið er að ferjan hafi rekist á kletta og hvolft þegar vél hennar stöðvaðist í miklum sjó. Vitni bera að báturinn hafi verið yfirfullur af fólki þegar hann lét úr höfn.