Þeir sem skutu niður þyrlu bandaríska hersins nýverið í Afganistan eru látnir að sögn Johns Allens, sem stýrir herafla Bandaríkjamanna þar í landi. Þrjátíu bandarískir hermenn létust í árásinni.
Allen segir að talibanarnir sem báru ábyrgð á árásinni hafi allir látist í loftárás Bandaríkjahers á þá. BBC greinir frá þessu en Allen sagði þetta á blaðamannafundi í Pentagon fyrir skömmu.