Kviðdómur í Texas dæmdi í gær Warren Jeffs, leiðtoga sértrúarsafnaðar, í lífstíðarfangelsi fyrir kynferðisofbeldi gegn tveimur stúlkum sem hann sagði vera andlegar brúðir sínar. Eru stúlkurnar tólf og fjórtán ára gamlar.
Jeffs er 55 ára gamall og titlar sjálfan sig sem spámann. Á hann um tíu þúsund fylgismenn en höfuðstöðvar hans hafa verið á búgarði í Texas í Bandaríkjunum.