Sláandi myndbandsupptaka úr eftirlitsmyndavél

Ökumaður bifreiðarinnar ók um á grænni Citroen bifreið, sem ekið …
Ökumaður bifreiðarinnar ók um á grænni Citroen bifreið, sem ekið var á ofsahraða í Waltham Forest, í Norðaustur London. Höggið var svo gríðarlegt að sérútbúinn búningur lögreglumannsins fóru af honum. RICHARD LEWIS

Myndbandsupptaka úr eftirlitsmyndavél sýnir þegar ekið er á tvo lögreglumenn sem reyna að elta ræningja í óeirðunum í London í síðustu viku. Þetta kemur fram á fréttavef Sky News.

Ökumaður bifreiðarinnar ók um á grænni Citroen-bifreið, sem ekið var á ofsahraða í Waltham Forest, í Norðaustur-London. Höggið var svo gríðarlegt að sérútbúinn búningur lögreglumannsins fór af honum.

Lögreglan flokkar málið sem tilraun til manndráps og sýnir nú myndefnið til þess að hvetja fólk til að bera kennsl á gerendurna. 

Lögreglumennirnir voru báðir fluttir á sjúkrahús, en hafa nú verið útskrifaðir af sjúkrahúsinu á meðan þeir bíða eftir frekari skoðun.

.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert